Félagsstarf

Félagsstarf í sveitarfélögum landsins

Víðsvegar um landið starfrækja sveitarfélög félagsmiðstöðvar þar sem boðið er upp á félags- og tómstundastarf auk námskeiða með það að markmiði að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun. Á félagsmiðstöðvunum er víða meðal annars boðið upp á mat og kaffi, tómstundaiðju og hreyfingu. Oft talar fólk um þessar félagsmiðstöðvar sem "félagsstarf eldri borgara" en á flestum stöðum er félagsstarfið opið öllum sem áhuga hafa. Nánari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan og hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Nánar um þjónustu sveitarfélaga

Höfuðborgarsvæðið

Reykjavík

Reykjavíkurborg býður upp á félagsstarf víðsvegar um borgina og er starfið opið öllum borgarbúum. Hver stöð er með sína eigin dagskrá og er hægt að fá hádegisverð og kaffiveitingar á öllum stöðvunum. 

Seltjarnarnes

Mosfellsbær

Kópavogur

Kópavogsbær starfrækir þrjú félagsheimili fyrir bæjarbúa og eru þau opin fólki á öllum aldri, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki búsettu í Kópavogi.

Hafnarfjörður

Garðabær

Félagsstarf eldri borgara í Garðabæ fer fram í Jónshúsi (Strikinu 6, sími 565 6627), í Kirkjuhvoli við Kirkjulund og i íþróttaaðstöðu Garðabæjar.

Vesturland

Akranes

Borgarbyggð

Vesturbyggð               

  • Félagsstarf eldri borgara í Vesturbyggð er annarsvegar í Eyrarseli Patreksfirði og hinsvegar í Læk Bíldudal. Aðrir aldurshópar eru velkomnir í félagsstarfið.
    Síminn í Eyrarseli er 450-2370 og síminn í Læk er 450-2372

Ísafjörður og nálægar byggðir   

Í boði er félagsstarf fyrir eldri borgara á Ísafirði, Flateyri, Þingeyri og Suðureyri. Mismunandi er eftir hverjum stað fyrir sig hversu oft í viku félagsstarfið fer fram. 

Norðurland

Blönduós

Upplýsingar um félagsstarf eldri borgara á Blönduósi

Skagafjörður

Fjallabyggð

Dalvík

Akureyri

Þingeyjarsveit


Austurland

Fjarðabyggð

Bæjarfélögin Neskaupsstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður tilheyra öll Fjarðabyggð. Á hverjum stað fyrir sig er boðið upp á félagsstarf fyrir eldri borgara.


Suðurland

Árborg

Félagsstarf eldri borgara í Árborg hefur verið í höndum Félags eldri borgara með stuðningi frá sveitarfélaginu samkvæmt sérstökum þjónustusamningi.


Suðvesturland

Reykjanesbær



Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Til baka

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér