Vinningshafi sumarhappdrættis Sjálfsbjargar

Þann 4. júní, sem er stofndagur Sjálfsbjargar lsf,  var dregið í sumarhappdrætti landssambandsins. Dregið er tvisvar á ári í Happdrætti Sjálfsbjargar þ.e. 4. júní og svo á Alþjóðadegi fatlaðra 3.desember.

Útgefnir miðar eru 55 þúsund í hvort skipti og heildarverðmæti  204 vinninga er kr.15.600.000,-

Margir góðir vinningar voru í  boði og var fyrsti vinningur bíll að verðmæti 3 milljónir frá Bernhard ehf bílaumboðinu.

Að þessu sinni var það heppinn miðaeigandi á Akureyri , Elísa Emma Zachrison,sem hlaut stóra vinninginn.

Elísa er eiginkona Valdimars Péturssonar sem margir Sjálfsbjargarfélagar þekkja fyrir störf í þágu Sjálfsbjargar, bæði félagsins á Akureyri og eins fyrir landssambandið,  en hann hefur lengi verið skoðunarmaður ársreikninga Sjálfsbjargar.

Dóttir þeirra Lísa Z. Valdimarsdóttir tók svo við bílnum í gær og mun koma honum til foreldra sinna á Akureyri.

Stjórn Sjálfsbjargar lsf óskar vinningshafanum til hamingju með bílinn, og öðrum vinningshöfum með sína vinninga, um leið og hún þakkar öllum þátttakendum í happdrættinum fyrir stuðninginn.