Þjónusta sveitarfélaga

Þjónusta sveitarfélaga

Þjónusta sveitarfélaga

Þjónusta sveitarfélaga getur verið veitt af sveitarfélagi, byggðarsamlagi eða öðru formlegu samstarfi sveitarfélaga.

Þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk er skipt upp í átta flokka og má sjá þá hér fyrir neðan. Hér til vinstri og á forsíðunni getur þú valið þitt landssvæði/sveitarfélag og séð hvað þar er í boði. Í öllum tilfellum er fólki sem leitar upplýsingar um þjónustu sveitarfélags ráðlagt að fara á vefsíðu sveitarfélagsins og leita upplýsinga þar eða hringja beint á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags. Flest sveitafélaganna hafa á vefsíðu sinni þjónustugátt (íbúagátt) sem eru mínar síður íbúanna og er mikilvægt að skrá sig þar inn því þar inni má komast í samskipti við sveitaryfirvöld og þar liggja gjarnar umsóknareyðublöð og fleira. 

Athugið að á nokkrum stöðum hér vantar upplýsingar um þjónustu í einstökum flokkum og er þá best að hafa beint samband við viðkomandi sveitarfélag með netpósti eða hringja beint á skrifstofu þess. Upplýsingar Þekkingarmiðstöðvarinnar á þjónustu sveitarfélaganna eru frekar almennar og byggjast á upplýsingum sem fengnar eru á vefsíðum sveitarfélaganna.

Á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga má m.a. finna:

Einn þjónustuflokkur sem er ekki á vegum sveitarfélaga er heimahjúkrun og þau verkefni sem falla þar undir. 



Liðveisla

Fatlað fólk á rétt á liðveislu, sem hefur það markmið að styðja við viðkomandi, auka sjálfstæði og rjúfa félagslega einangrun. Til liðveislu getur talist að gefa fötluðum einstaklingi kost á að njóta tómstunda og menningar, en einnig getur hún falið í sér stuðning heima við daglegar athafnir sem og búðarferðir og annað slíkt.

Frekari liðveisla

Frekari liðveisla er viðbótarþjónusta við lögbundna almenna þjónustu sem fötluðu fólki stendur til boða, eins og heimaþjónustu, heimahjúkrun, kennslu og þjálfun og kemur einungis til álita ef sú þjónusta telst ekki nægjanleg.
Frekari liðveisla er margháttuð persónuleg aðstoð í daglegu lífi, sniðin að þörfum hvers og eins.
Frekari liðveisla er þjónusta fyrir þá sem búa sjálfstætt í íbúð, hafi þeir fullnýtt rétt sinn til heimaþjónustu sveitarfélags skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Einnig að veitt sé heimahjúkrun þar sem það á við. Frekari liðveisla er fyrst og fremst veitt á heimili þjónustunotandans.

Húsnæðisbætur

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða þá sem leigja íbúðarhúsnæði, hvort sem er í félagslega kerfinu, námsgörðum eða á hinum almenna leigumarkaði „út í bæ“.
Markmið laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur er að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Íbúðalánasjóður  annast framkvæmd húsnæðisbótakerfisins og er sótt um bæturnar á vefsíðu sjóðsins (sérstök undirsíða: husbot.is ) og eru þar greinargóðar upplýsingar um fyrirkomulagið. Kerfið er fjármagnað að fullu úr ríkissjóði

Ferðaþjónusta fatlaðra

Fatlaðir einstaklingar sem ekki geta keyrt bíl, hafa ekki afnot af bíl né geta nýtt sér almenningssamgöngur (Strætó) eiga rétt á að nýta sér Ferðaþjónustu fatlaðra til að komast á milli staða. Einstaklingur sem þarf að dvelja í lengri tíma í öðru sveitarfélagi en hann býr í (s.s. vegna veikinda) getur hann óskað eftir því að samningur sé gerður á milli sveitarfélaganna. Þegar slíkum samningi er komið á getur einstaklingurinn nýtt sér ferðaþjónustu sveitarfélagsins sem hann þarf að dveljast í. 

Sveitarfélagið, sem einstaklingur á lögheimili í, sendir umsókn þar sem eftirfarandi er tekið fram:

  • hversu margar ferðir einstaklingurinn þarf
  • á hvaða tímabili
  • ábyrgð greiðslu ferðanna

Í Reykjavík sendast umsóknir til ff(hja)straeto.is.

Leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta er veitt fötluðum einstaklingum sem búa í heimahúsum og geta ekki án stuðnings séð um heimilishald og athafnir daglegs lífs. Einnig er veittur félagslegur stuðningur. Undir félagslega heimaþjónustu falla því heimilisþrif, heimsendur matur o.fl.

Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegt húsnæði er ætlað þeim einstaklingum sem vegna lágra tekna geta ekki leigt á almennum markaði eða keypt sér húsnæði. Skoðaðar eru tekjur allra á heimilinu, fjöldi barna o.s.frv. þegar verið er að ákveða hvort einstaklingur eigi rétt á félagslegu leiguhúsnæði og hve stórri íbúð.

Fjárhagsleg aðstoð

Einstaklingar sem ekki geta séð sér og fjölskyldu sinni farborða eiga rétt á fjárhagslegri aðstoð frá félagsþjónustunni. Sýna þarf fram á að tekjur séu lágar og nægi ekki fyrir fjölskylduna. Skoðaðar eru tekjur allra á heimilinu, fjöldi barna o.s.frv. þegar reiknað er út hvort viðkomandi eigi rétt á slíkum stuðningi.

Ýmislegt

Hér getur verið átt við þjónustu á borð við félagsstarf, garðslátt eða styrki vegna t.d. náms eða verkfærakaupa.


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér