Bláskógabyggð
Félagsheimilinu Aratungu | 806 Selfossi | 480 3000 | blaskogabyggd@blaskogabyggd.is | Vefsíða Bláskógabyggðar
Bláskógabyggð ásamt Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi, hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu, Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Nánari upplýsingar um þjónustuna má fá á vef Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.
Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlagið Bergrisann, um málefni fatlaðs fólks.
Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustuna. Fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér