Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hefur skipt borginni upp í fjórar miðstöðvar eru starfræktar á fimm stöðum í Reykjavík, en auk þess rekur velferðarsvið rafræna miðstöð, sem miða að því að sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur og má þar sækja ýmsa nær þjónustu eins og búsetuþjónustu, félagsstarfi, heimaþjónustu og stuðningsþjónustu.
Sótt er um alla þjónustu Reykjavíkurborgar á mínum síðum á vefsíðu borgarinnar, þar skrá íbúar sig inn til að sækja um þjónustu.
Hlutverk Innri endurskoðunar og ráðgjafar er að leiðbeina íbúum í samskiptum þeirra við embætti og stofnanir borgarinnar og veita þeim ráðgjöf um rétt sinn.
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hætt samstarfi við Velferðasvið Reykjavíkurborgar vegna útgáfu sundkorta. Einstaklingar sem þiggja örorkubætur geta ekki fengið frí sundkort hjá Reykjavíkurborg heldur fá þeir afslátt við kaup á sundkortum gegn framvísun örokuskírteinis. Fólk sem er á fjárhagsaðstoð eða atvinnuleysisbótum, og hefur verið í 2 mánuði eða lengur, getur mætt á sína þjónutumiðstöð til þess að fá sundkort.
Skíðasvæðin bjóða einnig upp á frí kort fyrir þá sem framvísa örorkuskírteini og hægt er að sækja um það á vefnum.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér