Vefsíður tengdar ferðalögum innanlands

Ferðaskrifstofur

Eftirfarandi ferðaskrifstofur gera sérstaklega ráð fyrir fötluðum ferðamönnum - ef vitað er um fleiri ferðaskrifstofur vinsamlegast komið þeim upplýsingum til Þekkingarmiðstöðvarinnar.

All Iceland tours

Gray Line býður upp á ferðir sem eru aðgengilegar einstaklingum sem nota hjólastóla. Nánari upplýsingar um ferðir Gray Line á vefsíðu þeirra.

Into the glacier

Into the glacier býður upp á ferðir á Langjökul og er lyfta í bílinn þannig að einstaklingar sem nota hjólastóla komast auðveldlega upp í bílinn. Upplýsingar á vefsiu þeirra..

Iceland unlimited

Iceland unlimited skipuleggur ferðir fyrir hreyfihamlað fólk, þar sem hugað er að aðgengi t.d. á þeim stöðum sem fólk vill fara á. Hægt er að ferðast um landið, njóta náttúrunnar og sinna ákveðnum áhugamálum eins og að veiða, fara á snjósleða, á fjórhjól, fara í jeppaferðir, sjá norðurljósin o.s.frv. Upplýsingar á vefsíðu þeirra.

Stofnanir sem sinna ferðamálum

Ferðamálastofa

Ferðamálastofa sér um útgáfu leyfa í ferðamannaiðnaðinum, skráningu á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt. Hún sér þannig um framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu, samræmingu umhverfis- og fræðslumála, miðlun upplýsinga, svæðisbundna þróun og alþjóðlegt samstarf. Nánari upplýsingar á vefsíðu þeirra.

Ferðamálastofa gaf út flokkunarviðmið, Ferðaþjónusta fyrir alla, um aðgengi að áningar- og útivistarsvæðum á Íslandi  í maí 2007. Þó svo að byggingarreglugerð hafi breyst síðan, er margt hægt að nota í þessum bæklingi.

Höfuðborgarstofa

Höfuðborgarstofa starfar á vegum menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Á vefsíðu Höfuðborgarstofu finna ferðamenn upplýsingar fyrir ferðalanga í Reykjavík, innlenda sem erlenda.

Íslandsstofa

Íslandsstofa stendur fyrir almennu kynningarstarfi sem beinist að því að efla orðspor og ímynd Íslands erlendis, skapa áhuga á landinu sem áfangastað og auka eftirspurn eftir því sem íslenskt er. Íslandsstofa stendur einnig fyrir fræðslu og stuðningi við samtök, fyrirtæki og einstaklinga sem miðar að því að efla færni þeirra og árangur í alþjóðaviðskiptum. 

Vakinn - gæðakerfi

Vakinn er byggður á nýsjálensku gæðakerfi fyrir ferðaþjónustu sem kallast Qualmark. Mikil vinna hefur verið lögð í að staðfæra kerfið og laga að íslenskum aðstæðum, að því hefur komið fjöldi aðila úr ferðaþjónustu og sérfræðingar á ýmsum sviðum. Gæðaviðmið Vakans fyrir hótel eru þó unnin samkvæmt gæðaviðmiðum frá evrópska Hotelstars kerfinu sem leitt er af Hotrec samtökunum en viðmið fyrir aðra gistiflokka Vakans byggja á Qualmark.

Ferðamálastofa stýrir Vakanum en verkefnið var upphaflega unnið í samvinnu við Samtök Ferðaþjónustunnar, Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálasamtök Íslands. Sjá frekar vefsíðu Vkans .

Gott aðgengi.

Fyrirtækið Gott aðgengi var starfsrækt hérlendis í nokkur ár og sérhæfði sig í að tska út aðgengi að martgvíslegum mannvirkjum, t.d. húsnæði og ferðamannastöðum. Fyrirtækið hætti störfum 2017. Notast var við ákveðið merkjakerfið sem verkfæri sem átti að stuðla að bættu aðgengi á Íslandi og tryggja að almenningur hafi öruggar og réttar upplýsingar um aðgengi að byggingum og útisvæðum Íslands. Verkfærið var ætlað einkaaðilum, fyrirtækjum og opinberum aðilum sem hafa umsjón með byggingum og öðrum mannvirkjum. Vefsíða þess lokaðist jafnframt, en unt e að skoða margvíslegar úttektir í gegnum danska móðurfyrirtækið Godadgang.dk og setja þar á vinstri síðu leitasrorð (t.d. Gullfoss) og ýta svo á íslenska fánann og komaþá fram upplýsinag um viðkomandi stað.

Access Iceland is an information and services database for accessible places in Iceland, based on seven categories of signaling systems and registration of access to facilities, indoors and outdoors, nature and services. Please note: even though facilities have registration of access it doesn't always mean a good access.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér