Samstarfsaðilar

Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra tekur þátt í samstarfi við ýmis félagasamtök, bæði innlend sem og erlend. Hér eru nefnd nokkur þeirra.

ÖBÍ Réttindasamtök

Sjálfsbjörg er eitt af stofnfélögum ÖBÍ Réttindasamtaka og hafa Sjálfsbjargarfélagar ávallt tekið virkan þátt í starfi ÖBÍ og hafa tveir fulltrúar Sjálfsbjargar gengt þar formennsku, Ólöf Ríkharðsdóttir og Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

Römpum upp Ísland

Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra stendur þétt við bakið á Römpum upp Íslands sem stefna að byggja 1500 nýja rampa um land allt. Þuríður Harpa Sigurðardóttir er varaformaður stjórnar og Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir er varamaður í stjórn.

Gott aðgengi í ferðaþjónustu

Í samstarfi við Ferðamálastofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og ÖBÍ stendur Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra að verkefninu Gott aðgengi í ferðaþjónustu. Verkefnið miðar að bæta aðgengi og upplýsingar um aðgengi á hótelum, veitingastöðum, ferðamannastöðum og í afþreyingu með sjálfsmati og verkfærum. Það er réttlætismál að fatlaðir hafi jafnan aðgang að ferðaþjónustu og ferðalögum.

Minningadagur um fórnarlömb umferðaslysa

Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Landsbjörg, lögreglan, Vegagerðin og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra sjá um að skipuleggja árlegan alþjóðlegan dag til minningar um fórnarlömb umferðaslysa.

Nordiska Handikappförbundet

Nordiska Handikappförbundet (NHF) eru Norðurlandasamtök systursamtaka Sjálfsbjargar frá hverju Norðurlanda. Fulltrúar þessara félaga, sem eru formenn og framkvæmdastjórar hverra landssamtaka,  mynda “stjórn” NHF. Fundað er tvisvar á ári og fjallað um þau málefni sem eru efst á baugi hverju sinni. Formennska í samtökunum færist árlega á milli hinna einstöku landa, í takt við það hvernig formennska í Norrænu ráðherranefndinni færist milli landanna.

Medic Alert

Medic Alert á Íslandi er hluti af alþjóðlegum samtökum sem gefa út merki sem fólk getur borið á sér. Á merkinu koma fram lífsnauðsynlegar upplýsingar um sjúkdóma og/eða fötlun viðkomandi. Bein tenging er síðan við bráðadeild Landspítala þar sem nánari upplýsingar eru vistaðar. Ef viðkomandi getur af einhverjum ástæðum ekki tjáð sig, ef hann/hún er t.d. meðvitundarlaus, getur svona merki verið mjög svo gagnlegt. Endilega kynnið ykkur Medic Alert.