Landsfundur 2018.

„Króna á móti krónu skerðing viðgengst ennþá hjá þeim sem eru á örorkulífeyri. Þá skerðingu ber að afnema nú þegar. Koma þarf í veg fyrir að örorka sé ávísun á fátækt.“ Þetta segir í einni af ályktunum Landsfundar Sjálfsbjargar lsh.

Landsfundurinn var haldinn um síðustu helgi. Þar voru samþykktar þrjár skýrar ályktanir. Bent er á að rífa þurfi upp ferðaþjónustu fatlaðra og að sveitarfélögum sé skylt að bjóða þá þjónustu. Afnema verði krónu-á-móti-krónu skerðingar nú þegar. Þá er skorað á Alþingi að ljúka fullgildingu og innleiðingu Sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Ályktanirnar má sjá hér að neðan.

1. Ályktun um ferðaþjónustu fatlaðra
Frá því nýtt fyrirkomulag í ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu var tekið upp hefur ríkt vantraust af hálfu farþega til ferðaþjónustu fatlaðra. Fyrir lok árs 2018 þurfa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að sýna fram á leiðir til úrbóta sem beðið hefur verið eftir við skipulag og þjónustu ferðaþjónustu fatlaðra. Afar mikilvægt er að sveitarfélögin svari fötluðu fólki og samtökum þeirra þessari spurningu sem allra fyrst

Samkvæmt áliti umboðsmanns alþingis, liggur það fyrir að öll sveitarfélög þurfa að veita sínum hreyfihömluðu íbúum ferðaþjónustu, líka í hinum dreifðari byggðum.

Landsfundur Sjálfsbjargar landssamband hreyfihamlaðra haldinn 21. apríl 2018 skorar á þau sveitarfélög sem ekki eru að veita ferðaþjónustu nú þegar, fyrir fatlað fólk að einhenda sér í veita hana, sé eftir henni óskað, enda er hún lögbundin.

2. Ályktun um kjaramál fatlaðra
Landsfundur Sjálfsbjargar landssamband hreyfihamlaðra haldinn 21. apríl 2018 skorar á ríkisstjórn Íslands að tryggja fötluðu fólki í landinu full mannréttindi. Króna á móti krónu skerðing viðgengst ennþá hjá þeim sem eru á örorkulífeyri. Þá skerðingu ber að afnema nú þegar. Koma þarf í veg fyrir að örorka sé ávísun á fátækt.

Samtökin krefjast þess að ríkisstjórnin, sveitarfélögin og atvinnulífið tryggi framboð á hlutastörfum nú þegar eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar.

Nýtt kerfi utanum örorkulífeyri og hugsanlegt starfsgetumat verður aldrei skiptimynt fyrir bætt kjör.

Landsfundurinn krefst þess að farið verði í þær viðræður sem boðaðar hafa verið við forsvarsmenn öryrkja, enn hafa ekki formlega farið af stað ennþá.

3. Ályktun um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Landsfundur Sjálfsbjargar harmar að ekki eigi að fullgilda Viðauka við samninginn en hann gerir ráð fyrir kvörtunarleið til Sameinuðu þjóðanna sem er nauðsynleg hreyfihömluðu fólki. Sú skýring stjórnvalda að viðaukinn hafi ekki verið fullgiltur vegna þess að hann inniberi valdaframsal er vafasöm, m.a. í ljósi þess að ályktun Alþingis gerði ráð fyrir að viðaukann ætti að fullgilda fyrir árslok 2017.