Ný stjórn boðin velkomin

Landsfundur Sjálfsbjargar lsh. fór fram dagana 26. og 27. apríl síðastliðinn, ekki tókst að ná niðurstöðu í nokkra dagskrárliði og var fundinum því frestað um óákveðinn tíma. Nýr formaður var kosin og tók Þuríður Harpa Sigurðardóttir við keflinu af Margréti Lilju Aðalsteinsdóttur sem gengt hefur embætti formanns síðstliðin tvö ár og var henni sem og fráfarandi stjórnarmönnum þökkuð vel unnin störf.

Þessi landsfundur var jafnframt síðasti landsfundur Herdísar Ingvadóttur sem gengt hefur embætti formanns Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrennis í 26 ár. Hún lét af formennsku í vor. Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra þakkar henni vel unnin störf í þágu landssambandsins.

Stjórn Sjálfsbjargar lsh. 2024 skipa:

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður

Rúnar Þór Björnsson, varaformaður

Grétar Pétur Geirsson. gjaldkeri

Frímann Sigurnýjarsson, ritari

Guðni Sigmundsson, meðstjórnandi

Hanna Margrét Kristleifsdóttir, varamaður

Stefanía B. Björnsdóttir, varamaður