Hreyfihamlaðir einstaklingar eiga rétt á P-merki, sem er skírteini sem fatlaðir setja við framrúðuna í bifreið sinni og gefur það þeim leyfi til að leggja í sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Slík stæði eiga að vera við þá staði sem fólk sækir þjónustu, svo sem verslanir og opinberar stofnanir en einnig geta einstaklingar sótt um að fá slík stæði við heimili.
Hvernig sæki ég um P-merki?
Stæðiskortið (P-merkið) er gefið út af sýslumannsembætti á því svæði sem þú býrð á og það er gefið út á persónu en ekki bílnúmer og er einungis heimilt að gefa út eitt kort á hvern einstakling. Til að sækja um P-merkið þarf að fylla út umsókn á vef viðkomandi sýslumanns:
Umsókninni þarf að fylgja:
Ef foreldri/forráðamaður sækir um P-merki fyrir fatlað barn, þá á mynd af barninu að fylgja með umsókninni. Ef viðkomandi getur ekki gefið rithandarsýnishorn er því sleppt.
Stofnun eða heimili þar sem dvelja hreyfihamlaðir einstaklingar getur sótt um sameiginlegt stæðiskort fyrir bifreið í sinni eigu til flutnings fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Skilyrði fyrir útgáfu slíks korts er að það sé eingöngu notað við slíkan flutning en ekki við annars konar nýtingu bifreiðarinnar. Læknisfræðileg viðmið, sbr. 2. mgr. 3. gr., skulu lögð til grundvallar við mat á beiðni og afgreiðslu. Sjá nánar Reglugerð nr. 1130/2016 um útgáfu og notkun stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða.
Það kostar ekkert að fá P-stæðiskort og það er yfirleitt tilbúið eftir 2-3 daga eftir að öll gögn hafa borist til sýslumanns og þarf þá að sækja það eða láta senda í pósti á herimili viðkomandi.
Stæðiskortið er gefið út í tiltekinn tíma, að hámarki 5 ár en ekki skemur en 2 ár. Ef þörf er tímabundin má gefa út stæðiskort í skemmri tíma (jafnvel nokkra mánuði en það þarf að koma fram í læknisvottorði að þörfin sé tímabundin). Ef vetrarfærð veldur hreyfihömlun sérstaklega má gefa út stæðiskort er gildir fyrir tímabilið frá 15. október til 1. maí.
Endurnýjun P- merkis
Þegar sótt er um endurnýjun P-merkis þarf að skila inn sömu gögnum og þegar sótt er um í fyrsta skipti.
Hvert fer ég með umsókn um P-merki?
Einstaklingar sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu fara með umsóknina á skrifstofu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að Hlíðarsmára 1, 201 Kópavogi. Einstaklingar búsettir í öðrum sveitarfélögum sækja um hjá sýslumanni í sinni heimabyggð.
Hvernig nýtist P-merkið?
Hreyfihamlaðir einstaklingar eiga rétt á P-merki sem gefur þeim leyfi til að leggja í sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Tryggja þarf að framhlið merkisins og gildistími sjáist vel í framrúðu bílsins, annars er mögulegt að gefin sé út sekt ef kortið er skoðað.
Hreyfihamlaðir einstaklingar sem ekki eru með bílpróf geta einnig átt rétt á P-merki, sjá grein nr. 2 í reglugerð hér fyrir neðan.
Hreyfihamlaðir einstaklingar með P-merki hafa leyfi til að leggja í stæði þar sem gjaldskylda er (stöðumælir) án þess að greiða í stöðumælinn, þetta á þó ekki við um bílastæðahús.
Plastvasa utan um P-merkið sem hægt er að festa í framrúðu bílsins, má fá í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar (Borgartúni 12 - 14).
Ferðalög erlendis
Sýslumenn gefa út P-merki Evrópusambandsins sem gilda innan Evrópusambandsríkja og einnig víðar. Í umsókninni um P-merki þarf að merkja sérstaklega við hvort að þörf sé á að nota stæðiskortið í öðru EES-ríki.
Í bæklingi frá Evrópusambandinu má finna upplýsingar um notkun á stæðiskorti fatlaðs fólks innan Evrópusambandsins og skilyrði í hverju aðildarríki.
Innan Bandaríkjanna er misjafnt eftir fylkjum hvort sækja þarf sérstaklega um P-merki eða hvort tekin séu gild P-merki annarra ríkja. Í Bandaríkjunum sér Department of Motor Vehicles um útgáfu P-merkja. Í Florida þarf að sækja sérstaklega um skammtíma P-merki.
Hægt er að kynna sér upplýsingar um notkun stæðiskort fyrir fatlaða ferðamenn eftir löndum á vefsíðu FIA
Erlendir ferðamenn
Erlendir ferðamenn sem hafa fengið útgefið P-merki í sínu heimalandi geta notað þau á Íslandi. Merkin þurfa að vera vel sýnileg í framrúðu bílsins. Sjá einnig nánar upplýsingar fyrir erlenda ferðamenn með P-merki á vefsíðu FIA
Bílastæði hreyfihamlaðra
Á kortavef Access Iceland og Wheelmap má finna bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk. Á Wheelmap skrá notendur sjálfir inn upplýsingar um aðgengilega staði fyrir hjólastóla.
Almennt P-stæði fyrir íbúa og gesti
Reykjavík:
Sótt er um að fá P-merkt stæði sett upp við íbúðarhúsnæði með því að senda erindi til Þjónustumiðstöðvar Háaleitis- og Laugardals. Þegar heimild hefur verið fengin setur bílastæðasjóður merkið upp. Sé um fjölbýli að ræða þarf samþykki húsfélags. Stofnanir hafa samband við samgöngustjóra hjá Reykjavíkurborg til þess að fá P-merkt stæði hjá sér.
Sérmerkt P-stæði:
Ef íbúi í fjölbýlishúsi sem er með P-stæðiskort þarf að hafa sérmerkt P-stæði sem hann einn hefur afnot af (merkt bílnúmeri). Þá í fyrsta lagi þarf samþykki húsfélagsins til að merkja eitt stæðið (ef hver íbúi er ekki með eigið stæði) og er viðmiðið að húsfélagið borgi uppsetningu á stæðinu en viðkomandi borgi fyrir sjálft skiltið, enda sé það sérmerkt með bílnúmeri og hann getur flutt það með sér ef svo vill til. Það eru vinnureglur Reykjavíkurborgar.
Síðan er almenn krafa að við fjölbýlishús sé tiltekinn fjöldi merktra stæða fyrir fatlaða við húsið. Þau stæði eru almennt ekki ætluð fyrir fatlaða íbúa að leggja í, heldur eru þau ætluð fyrir fatlaða gesti og sjúkrabifreiðar.
Önnur sveitarfélög:
Íbúðarhúsnæði á einkalóð: Íbúi/-ar setur sjálfur upp merkið og greiðir kostnað við það.
Eins og nefnt hefur verið, að ef um fjölbýli er að ræða þarf samþykki húsfélagsfundar fyrir því að merkið verði sett upp og húsfélög greiða kostnað. Ef um lóð viðkomandi sveitarfélags ræðir er yfirleitt haft samband við skipulags-/framkvæmdadeildir-/gatnadeild þess og starfsmenn bæjarins sjá um uppsetninguna.
Breytingar vegna bílastæða og sérmerkingar:
Á vef Vegagerðarinnar má sjá merkingar sem notaðar eru til að merkja bifreiðastæði og sérstaka umferð fyrir fatlað fólk. Merkið sem notað er fyrir bifreiðastæði fatlaða flokkast sem J11.11 en einnig er hægt að nota merki D01.21 og merki D11.11 er notað við leiðir sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir umferð fatlaðra.
Merkingar fyrir sérmerkt bílastæði:
Fyrirtækið Merking býr til skilti fyrir sérmerkt bílastæði. Kostnaður getur verið misjafn og fer eftir stærð skiltisins hér eru nokkur verðdæmi sem starfmaður gaf upp símleiðis - ath. verðin breytast (10.01.2017):
Bílastæðamálun:
Fyrirtækið B.S Verktakar býður fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og öðrum upp á málun bílastæða og aðrar skyldar merkingar svo sem stæði fatlaðra.
Fyrirtækið GSG býður fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og öðrum upp á málun bílastæða fyrir fatlaða.
Fyrirtækið Bilastaedamalun.is býður upp á bílastæðamálun víða um land.
Stofnkostnaður við að mála eitt P-stæði getur numið um 50.000 kr. (verð breytast - upplýsingar frá 2017).
Ef þú veist um fleiri fyrirtæki sem sinna bílastæðamálun eða gera skilti fyrir sérmerkt bílastæði þá mátt þú vinsamlegast láta okkur vita. Hægt er að senda okkur skilaboð á facebook síðu okkar eða hafa samband hér
Reglugerð
Í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er tilgreint hvernig bílastæði hreyfihamlaðra skulu vera. Á vef Mannvirkjastofnunar má sjá leiðbeiningar sem unnar eru út frá reglugerðinni. Hér fyrir neðan eru helstu atriðin í leiðbeiningunum dregin út. Til að fá nánari upplýsingar er nauðsynlegt að skoða leiðbeiningablöðin.
Bílahús á vegum Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar eru Stjörnuport, Vitatorg, Traðarkot, Ráðhúskjallari, Vesturgata og Kolaport. Þar er sérstakt fyrirkomulag á aðgengi fyrir handhafa stæðiskorta.
Fyrirkomulagið er þannig að þegar ekið er inn í bílahús eða um leið og búið er að leggja bifreið í stæði þá er hringt í síma 411 3403 eða notaður aðstoðarhnappur til að gefa upp bílnúmer sem staðsettir eru við innganga.
Ef P-kort hreyfihamlaðra er síðan á mælaborði við eftirlit starfsmanna Bílastæðasjóðs þá þarf ekki að fara í greiðsluvél heldur er nóg að aka að úthliði.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér