TR

Hlutverk TR er í meginatriðum að framfylgja lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð

TR veitir einstaklingum sem ekki geta unnið fulla vinnu sökum skertrar starfsgetu aðstoð á borð við örorkulífeyri, styrki vegna bifreiðakaupa, barnalífeyrir og aðrar tengdar greiðslur. Afgreiðslutími Tryggingastofnunar er frá kl. 11:00 til 15:00, sími 560 4400. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið tr@tr.is. Stofnunin er staðsett í Hlíðarsmára 11 í Kópavogi (í hliðinni ofan við Smáralind). Sjá nánar á vefsíðu TR.

Sækja skal um allar bætur frá Tryggingastofnun og skulu allar umsóknir vera undirritaðar af umsækjanda sjálfum, forsjáraðila er þó heimilt að undirrita umsókn um örorkulífeyri áður en umsækjandi verður 18 ára. Sjá umsóknir sem eru í boði hjá TR - og muna að skrá sig á mínar síður TR ..

Undir liðnum Örorkulífeyrir hér til vinstri hafa verið teknar saman helstu upplýsingar á vef TR um örorkulífeyri.

Afgreiðslutími umsókna sem berast Tryggingastofnun er misjafn eftir því hvað sótt er um.

Útibú á landsbyggðinni

Umboðsmenn TR og Sjúkratrygginga eru flestir staddir í húsnæði sýslumanna landsins á viðkomandi svæði.



Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér