Útivist

Hér má nálgast upplýsingar um aðgengilegar gönguleiðir, útivistarsvæði og veiðistaði víða um land.

Gönguleiðir og útivistarsvæði

Helstu gönguleiðir á Íslandi

Á kortavef ganga.is er hægt að finna upplýsingar um helstu gönguleiðir á Íslandi.  Hægra megin á síðunni velur maður hvort maður vilji finna stuttar gönguleiðir eða langar og með því að ýta á gönguleiðirnar er hægt að fá leiðarlýsingu og ýmsar upplýsingar, s.s. hversu löng leiðin er, hvernig stígarnir eru o.fl.

Hvernig er gönguleiðin?

Á vefsíðunni gönguleiðir.is er búið að safna saman upplýsingum um ýmsar gönguleiðir um land allt. Á síðunni er hægt að lesa sér til um hverja gönguleið fyrir sig, s.s erfiðleikastig, lengd o.fl. ásamt því að skoða myndir.  

"Að brúka bekki"

"Að brúka bekki" er verkefni með það markmið að fjölga almenningsbekkjum í bæjarfélögum landsins, til þess að auðvelda öllum að stunda hreyfingu og er fólk hvatt til að ýta á eigin sveitarfélag að taka þátt í þessu þarfa verkefni og setja sér að setja einhverja almenningsbekkjum í bæjarfélaginu til að auðvelda hreyfihömluðu fólki , yngri sem eldri, að fara í léttar gönguferðir í nærumhverfinu. Á vefsíðu Félags íslenskra sjúkraþjálfara er búið að safna saman yfirlitskortum frá ýmsum stöðum þar sem búið er að merkja inn á myndir gönguleiðir og hvar bekki er að finna.

Götukort af Reykjavík

Á Borgarvefsjá er hægt að skoða götukort af Reykjavík. Með því að opna valglugga sem er staðsettur efst í vinstra horninu á kortinu má t.d. haka við bekki og smella á "Uppfæra kort" (skrifað með rauðum stöfum uppi í vinstra horni valgluggans), þá  sjást m.a. hvar bekkir eru staðsettir í borginni.

Gönguleiðir í Hafnarfirði

Upplýsingar um göngu/-og hjólaleiðir í Hafnarfirði má finna á vefsíðu Hafnarfjarðar

Gönguleiðir í Mosfellsbæ

Á vefsíðu Mosfellsbæjar má finna (PDF skjal)kort með merktum göngu- og hjólreiðastígum.

Gönguleiðir á Akureyri

Upplýsingar um gönguleiðir og göngukort á Akureyri

Kriki við Elliðavatn

Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu á sumarhús við Elliðavatn sem ber heitið Kriki.  Skuldlausir Sjálfsbjargarfélagar mega veiða í landi Krika í Elliðavatni og/eða koma með bát og sigla um vatnið.  Þannig er unnt að veiða frá bryggju sem er stutt frá húsinu (steinbryggjunni - hin er notuð til að komast í bátana þegar fæst aðstoð til að sigla á vatninu). Kriki er er með góða inniaðstöðu og þegar húsið er opið eru seldar þar veitingar, kaffi, meðlæti, gos og ís, Þá er einnig góður pallur er snýr í suður og þar er setið þegar vel viðrar. Kriki er opinn eftir hádegi í júní, júlí og ágúst. Skoðið frekari upplýsingar á  facebook-síðu (Opnast í nýjum vafraglugga) Krika.

Tjarnarleitisrétt við Skjálftavatn

Útsýnispallur við Tjarnarleitisrétt

Þar er hægt að njóta útsýnis, hafa með sér kaffi og kíki til að skoða fugla, iðka jóga eða hvað annað sem hugurinn býður, í friði og ró og fallegu umhverfi. Pallurinn er með aflíðandi rampi (150 cm breiður). Það er möl við enda rampsins en ekki mjög gróf. Pallurinn stendur við Tjarnarleitisrétt við Skjálftavatn.  Pallurinn er staðsettur nokkra metra norðan við réttina, þar sem gott útsýni er yfir Skjálftavatnið, Sandinn og fjöllin í Öxarfirði, Núpasveit og Tjörnesskaganum

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér