Sjúkrahótel og íbúðir
Sjúkrahótel á Akureyri eru á vegum Hótels Akureyrar og eru á tveim stöðum. Annars vegar á Hótel Akureyri í Hafnarstræði og hins vegar á Gistihúsinu Hrafninum í Brekkugötu. Framboð herbergja fer eftir bókunarstöðu hverju sinni. Sjúklingur getur bókað herbergi sjálfur eða læknir/hjúkrunarfræðingur sjúklings en það þarf að liggja fyrir tilvísun frá lækni. Engin hjúkrunarþjónusta er veitt á hótelinu og þarf sjúklingurinn því að geta séð um sig sjálfur. Einn aðstandandi getur gist með sjúklingnum.
Nýtt sjúkrahótel Landsspítalans var opnað við Hringbraut í Reykjavík 2019. Sjúkrahótelið er ætlað sjúklingum sem teljast í þörf fyrir dvöl á sjúkrahóteli í tengslum við heilbrigðisþjónustu og aðstandendur þeirra eftir því sem við á. Læknir sendir beiðni fyrir hönd sjúklings um dvöl á sjúkrahóteli. Nánari upplýsingar um hótelið.
Landspítalinn hefur yfir að ráða nokkrum íbúðum sem hugsaðar eru fyrir sjúklinga spítalans og aðstandendur.
Á vefsíðu Landspítalans (október 2014) kemur eftirfarandi skipting á milli deilda fram:
Tengiliður: Sif Jónsdóttir. Sími: 543 3724 eða 543 3700. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið sifj(hjá)landspitali.is
Eskihlíð 6a og 6b
Lindargata 33
Ljósheimar 22
Mánatún 3
Skúlagata 10
Tengiliður: Þórunn Haraldsdóttir, ritari barnadeildar. Sími: 543 4355.
Kleppsvegur 4
Tengiliður: Sigurveig Pálmadóttir. Sími: 543 6800
Rauðarárstígur 33 (8 íbúðir)
Tengiliður: Kristín I. Rútsdóttir. Sími: 543 1000 / 543 3010 / 543 3030 / 543 3034.
Flókagata 62
Gautland 11
Orlofsíbúð SEM samtakanna á Akureyri. Íbúðin er til útleigu fyrir félagsmenn og almenning allt árið um kring. Félagsmenn fá forgang yfir sumarið.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér