Íþróttafélög

Íþróttafélög

Íþróttasamband fatlaðra

Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) er eitt af 33 sérsamböndum ÍSÍ. ÍF er til húsa í Íþróttamiðstöðinni Laugardal í Reykjavík. Hlutverk sambandsins eru margs konar og má þar nefna t.d. að hafa yfirumsjón með íþróttagreinum sem fatlað fólk á Íslandi stundar, að annast fræðslustarf og vera fulltrúi Íslands varðandi erlend samskipti er tengjast íþróttamálum fatlaðs fólks . Sjá nánar á vefsíðu Íþróttasambands fatlaðra

Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík

Íþróttagreinarnar sem ÍFR hefur umsjón með eru boccia, bogfimi, borðtennis, frjálsar íþróttir, knattspyrna, lyftingar, hjólastólakörfubolta og sund. Auk þess rekur ÍFR íþróttaskóla. Flestar íþróttagreinarnar eru stundaðar Í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún 14 í Reykjavík fyrir utan frjálsar íþróttir sem eru stundaðar í Laugardalshöllinni og sund sem er æft í Laugardalslauginni við Laugardal. Sjá nánar á vefsíðu ÍFR.

Íþróttafélagið Nes á Suðurnesjum

Íþróttafélagið Nes býður upp á íþróttagreinarnar boccia, fótbolta, frjálsar íþróttir, sund og lyftingar. Æfingar fara fram í Akurskóla, Vatnaveröld, Heiðarskóla, Reykjaneshöll og Íþróttahúsinu v/Sunnubraut. Sjá nánar á facebooksíðu Ness .

Íþróttafélagið Ösp í Reykjavík              

Íþróttafélagið Ösp í Reykjavík býður upp á íþróttagreinarnar boccia, fótbolta, keilu, frjálsar íþróttir, listhlaup, lyftingar, sund og fimleikar. Íþróttagreinarnar eru stundaðar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Sjá nánar á vefsíðu Asparinnar.

Íþróttafélagið Fjörður í Hafnarfirði

Íþróttafélagið Fjörður býður upp á íþróttagreinarnar boccia og sund.  Íþróttagreinar hjá Firði eru stundaðar við Haukaheimilið og í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Sjá nánar á vefsíðu Fjarðar.

Íþróttafélagið Ægir í Vestmannaeyjum

Íþróttagreinarnar sem Ægir býður uppá eru boccia og fótbolti. Sjá nánar á vefsíðu Ægis .

Íþróttafélagið Ívar á Ísafirði

Íþróttafélagið Ívar býður upp á íþróttagreinarnar boccia og sund. Sundið er stundað í sundhöll Ísafjarðar. 
Sjá nánar á vefsíðu Ívars   

Sundfélagið Óðinn á Akureyri

Sundfélagið Óðinn býður uppá sund. Sundið er stundað í Akureyrarlaug. Sjá nánar á vefsíðu Óðins

Íþróttafélagið Akur á Akureyri

Akur býður upp á æfingar í boccia, borðtennis, dansi, bogfimi, frjálsum íþróttum sem og vetraríþróttum. Sjá nánar á vefsíðu Akurs .

Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík

Íþróttafélagið Völsungur býður eingöngu uppá boccia. Sjá nánar á vefsíðu Völsungs

Golfsamtök fatlaðra á Íslandi

Golfið er stundað víðsvegar um landið. Sjá nánar á Facebook-síðu Golfsamtakanna


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér