Sjálfsbjörg býður félögum sínum frí stuðningsviðtöl hjá Samskiptastöðinni. Hægt er að fá viðtal vegna sálfræðimeðferðar, félagsráðgjafar, fjölskyldumeðferðar, fræðslu og sáttarmiðlunar.
Óskið eftir tíma með því að senda tölvupóst á samskiptastodin@samskiptastodin.is eða hringja í síma 419-0500.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á sirry@sjalfsbjorg.is með beiðni um tíma eða frekari spurningar.
Viðtölin standa félagsmönnum Sjálfsbjargar til boða. Til að gerast félagsmaður er hægt að hafa samband við eitt af aðildarfélögum Sjálfsbjargar sem eru staðsett víða á Íslandi. Upplýsingar um aðildarfélögin er að finn hér
Viðtölin fara fram á Samskiptastöðinni
Alda hefur reynslu af því að veita meðferð við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu, lágu sjálfsmati, áfengisvanda og sálrænni vanlíðan í kjölfar líkamlegra veikinda. Auk þess hefur Alda reynslu af sálrænum stuðningi við aðstandendur einstaklinga með heilabilun.
Alda Dís útskrifaðist með BA í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2021 og MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024, hún fékk starfsleyfi sálfræðings sama ár. Alda leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) í sinni meðferð sem sálfræðingur. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu undir handleiðslu reyndra sálfræðinga og sótti starfsnám hjá Reykjavíkurborg, Reykjalundi og Áfallateymi Landspítala. Hún fékk handleiðslu í kennslu námskeiðsins ,,Foreldramiðað HAM” hjá Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar sem er námskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 5-12 ára sem sýna einkenni kvíða. Í meistararannsókn sinni rannsakaði Alda upplifun þolenda kynferðisofbeldis af því að opna sig um ofbeldið á samfélagsmiðlum. Þá skoðaði hún m.a. hvað leiddi til ákvörðunarinnar að segja frá með þeim hætti og hvaða afleiðingar sú ákvörðun hafði fyrir þolendur.
Samhliða starfi á Samskiptastöðinni starfar Alda í sálfræðiþjónustu vefrænna deilda Landspítala á Landakoti þar sem hún veitir m.a.
einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendum þeirra sálfræðiaðstoð.
Alda hefur auk þess mikinn áhuga á heilsu og velferð barna og er jafnframt kórstjóri Barnakóra Guðríðarkirkju.
Elín útskrifaðist með BS í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016, MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024 og hlaut í kjölfarið starfsréttindi sem klínískur sálfræðingur. Elín leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) og sinnir málum á borð við kvíða, þunglyndi, þrálát líkamleg einkenni, lágt sjálfsmat og áföll ásamt öðrum tilfinningalegum vanda. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu á greiningar- og meðferðarvinnu bæði með unglingum og fullorðnum. Hún var í starfsnámi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Geðheilsumiðstöð barna og geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítala.
Meistaraverkefni hennar fól í sér að árangursmeta hugræna atferlismeðferð í hóp við þrálátum líkamlegum einkennum og starfar hún enn við rannsóknir samhliða starfi sínu hjá Samskiptastöðinni. Undanfarin ár hefur Elín starfað við rannsóknir en hún hefur einnig lokið meistaranámi á félagsvísindasviði með áherslu á lýðheilsu og hnattræna heilsu. Elín hefur mikinn áhuga á heilsu og velferð barna og starfaði lengi í æskulýðsstarfi með börnum og unglingum á öllum aldri.