Samband íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við Þroskahjálp, ÖBÍ og Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum HÍ stendur að málþingi sem ber yfirskriftina:
Hvaða þýðingu hefur Sáttmáli SÞ um réttindi fatlaðs fólks
fyrir þjónustu og starfsemi íslenskra sveitarfélaga?
Málþing verður haldið á Grand Hóteli í Reykjavík þriðjudaginn 16. maí 2017 kl. 13:00 til 17:00 – enginn aðgangseyrir.
Dagskrána má lesa hér
Reykjavíkurborg, Landssamtökin Þroskahjálp, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum og Öryrkjabandalag Íslands bjóða til málþings á Grand hótel Reykjavík þ. 19. maí. kl. 09:00 – 12:15. Málþingið ber yfirskriftina:
Mannréttindi og algild hönnun,
Hafa allir borgarbúar jafnan aðgang að upplýsingum, menningu, tómstundum, listum, sundlaugum, internetinu, bókasöfnum og stjórnsýslunni?
Dagskrá má lesa hér