Þann 21. maí undirrituðu Sjálfsbjörg og Samskiptastöðin samning um meðferðarviðtöl sem verða félagsfólki Sjálfsbjargar að kostnaðarlausu. Í boði eru viðtöl vegna sálfræðimeðferðar, félagsráðgjafar, fjölskyldumeðferðar, fræðslu og sáttarmiðlunar.
Óskið eftir tíma með því að senda tölvupóst á samskiptastodin@samskiptastodin.is eða hringja í síma 419-0500.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á sirry@sjalfsbjorg.is með beiðni um tíma eða frekari spurningar.
Viðtölin standa félagsmönnum Sjálfsbjargar til boða. Til að gerast félagsmaður er hægt að hafa samband við eitt af aðildarfélögum Sjálfsbjargar sem eru staðsett víða á Íslandi. Upplýsingar um aðildarfélögin er að finn hér
Viðtölin fara fram á Samskiptastöðinni en einnig eru fjarviðtöl í boði.
Á myndinni eru Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Sjálfsbjargar lsh. Íris Eik Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Samskiptastöðvarinnar og Sigríður Agnes Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar lsh.