Starfsemin

Rampur númer eittþúsund og tvöhundrað vígður á vestfjörðum!

Ástþór Skúlason bóndi á Melanesi, Gunnþórunn Bender forseti bæjarstjórnar, starfsmaður Rampa, Magnús Árnason verkefnastjóri Tálknafjarðar og Vesturbyggðar, Páll Vilhjálmsson formaður bæjarráðs, Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi bæjarstjóri sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar og Arnheiður Jónsdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs Tálknafjarðar og Vesturbyggðar

Átaki Haraldar Þorleifssonar, Römpum Upp Ísland, vindur áfram og í dag var rampur númer 1.200 vígður við hátíðlega athöfn við Skor á Patreksfirði. Í maímánuði var rampur númer 1.100 reistur og í dag var rampur númer 1.200 vígður. Umræddur rampur er jafnframt sá fyrsti sem er reistur í átakinu Römpum upp á Vestfjörðum. Þessi atburður markar tímamót í átakinu „Römpum upp Ísland”, sem stefnir að því að byggja 1.500 rampa í þágu hreyfihamlaða fyrir 11. mars 2025.

Viðburðurinn vakti mikla athygli Vestfirðinga og fékk góðar undirtektir meðal þeirra. Hann Ástþór Skúlason, íbúi á Patreksfirði og ötull baráttumaður fyrir auknu aðgengi í sinni heimabyggð, klippti á borðann. Haft er eftir Gerði Björk Sveinsdóttir, starfandi bæjarstjóra í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar :

“Við skulum vona að við munum ekki láta staðar numið hér heldur líta á þetta sem hvatningu til okkar og hafa ávallt í huga aðgengismál fyrir alla, bæði þegar kemur að aðkomu og aðgengi að húsnæði sveitarfélagsins og eins að öðrum stöðum þar sem aðgengismál eiga að vera í lagi.“

Á næstu dögum munu starfsmenn verkefnisins halda för sinni áfram um Vestfirðina og halda áfram að reisa rampa. Þar bíða þeirra verkefni meðal annars á Ísafirði, Hólmavík og Bolungarvík.

Átakið Römpum upp Ísland hefur nú reist 1.200 rampa og var sá fyrsti tekinn í notkun í maí 2021. Upphaflega var stefnt að því að reisa þúsund rampa, en var sú ákvörðun svo tekin að ganga einu skrefi lengra og reisa eitt þúsund og fimmhundruð rampa. Verkefnið teygir sig út um allt land og lætur ekki staðar numið þar til að Ísland verður aðgengilegt öllum.

Að verkefninu koma margir styrktaraðilar, þeirra á meðal: Ueno, Össur, Deloitte, Brandenburg, Aton.JL, Lex lögmannsstofa, BM Vallá, Icelandair, Orkan, ÞG Verk, Sjálfsborg, ÖBÍ, Reykjavíkurborg og Innviðaráðuneytið. Að auki hefur fjölmargt stuðningsfólk lagt hönd á verkið.

Ástþór Skúlason bóndi á Melanesi klippir á borða við vígslu rampsins.
Gerður Björk Sveinsdóttir, starfandi bæjarstjóri í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar segir nokkur orð við vígslu rampsins.