Landsfundur Sjálfsbjargar 2025

Landsfundur Sjálfsbjargar lsh. fór fram dagana 25. – 26. apríl síðastliðinn. Á fyrri deginum var ný stefna kynnt og samþykkt, en samtökin unnu að henni frá síðasta landsfundi. Á seinni deginum voru ný heildarlög Sjálfsbjargar lsh. samþykkt og tóku þau þegar gildi. Afgreidd var ályktun um hjálpartæki og nýtt fólk var kjörið í stjórn. Í stjórn landsambandsins var kosið um embætti varaformanns og ritara, Jón Heiðar Jónsson var í framboði til varaformanns og Helga Magnúsdóttir var í framboði til ritara og voru þau sjálfkjörin.

Nýja stjórn Sjálfsbjargar lsh. 2025 skipa:

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður - Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu

Jón Heiðar Jónsson, varaformaður - Sjálfsbjörg á Akureyri og nágrenni

Grétar Pétur Geirsson, gjaldkeri - Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu

Helga Magnúsdóttir, ritari - Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu

Guðni Sigmundsson, meðstjórnandi - Sjálfsbjörg Mið-austurlandi

Linda Egilsdóttir, varamaður - Sjálfsbjörg á Akureyri og nágrenni

María Jónsdóttir, varamaður - Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu

Fleiri fréttir