Sjálfsbjargarfélagar eru mörg hver sérstaklega ósérhlífin og hjálpsöm. Stjórn Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra lsh. sá ríka ástæðu til að veita Margréti S. Jónsdóttur formanni Sjálfsbjargar á Suðurnesjum blómvönd sem þakklætisvott fyrir einstaka aðstoð við skipulagningu landsfundar samtakanna í apríllok 2024. Óhætt er að segja að Margrét hafi tekið málin í sínar hendur af röggsemi og æðruleysi og þannig séð til þess að fundurinn heppnaðist með ágætum.