Starfsemin

Framhaldsfundur Landsfundar Sjálfsbjargar lsh 2024

Framhalds landsfundur Sjálfsbjargar lsh. verður haldinn rafrænt mánudaginn 3. júní nk. Á fundinum verða tekin fyrir þeir dagskrárliðir sem ekki náðist að afgreiða á fyrri hluta fundarins. Búið er að senda fundarboð til flestra landsfundarfulltrúa sem rétt eiga til setu á fundinum. Þau sem ekki hafa fengið fundarboð né rafrænan hlekk eru beðin að senda formanni netfang sitt og nafn þannig að hægt sé að senda fundarboð og hlekk. Netfang formanns er harpa@sjalfsbjorg.is