Aðgengisdagur Sjálfsbjargar verður haldinn í fyrsta skipti laugardaginn 27. ágúst.
Þennan dag ætlum við að bjóða öllum sem vilja, að taka þátt í að skrá inn upplýsingar um aðgengi að verslunum, kaffihúsum, veitingastöðum, söfnum, kirkjum, íþróttamannvirkjum og annarri þjónustu.
Það eina sem þið þurfið að gera er eftirfarandi:
1. Hlaða niður TravAble appinu í símann ykkar (TravAble appið má nálgast í Applestore og GooglePlay og hægt er að fylla inn í það hvar sem er og hvenær sem er. Allir eru hvattir til að fylla inn í appið upplýsingar um aðgengi í sinni heimabyggð)
2. Fá ykkur göngutúr í nærumhverfi ykkar einhvern tímann á laugardeginum
3. Kíkja á hina ýmsu staði og fylla inn upplýsingar um aðgengi í TravAble aðgengisupplýsinga appið
Það væri frá bært ef þið mynduð taka myndir frá deginum og senda á okkur á info@sjalfsbjorg.is eða birta sjálf myndir á samfélagsmiðlum og merkja myndina #aðgengisdagur2022
Í Reykjavík býður Sjálfsbjörg landssamband hreyfhamlaðra og Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu gestum og gangandi að hittast kl. 13 á svölunum (á 2. hæð) í Hátúni 12 í kaffi. Því næst verður farið um allan bæ og geta gestir skráð það inn í Travable appið. Tilvalið einnig að sjá alla rampana i miðbæ Reykjavík.
Akureyri - hluti af Akureyrarvöku
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum (við Fitjabraut 6) verða með opið hús milli 14 og 17. Kaffiveitingar í boði og allir velkomin í heimsókn til að kynna sér starfið.