Menning - Tónlist og leikhús

Hér söfnum við upplýsingum um aðgengi á ýmsum menningarstöðum. Ef þú hefur upplifað gott aðgengi á einhverjum menningarstöðum víðs vegar um landið, sem ekki eru að finna hér á síðunni, endilega láttu okkur vita.

Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið | Listabraut 3 |103 Reykjavík | Sími: 568 8000 |Vefsíða Borgarleikhússins

Hjólastólanotendur fá afslátt af miðaverði líkt og aðrir öryrkjar. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla inn í leikhúsið og innan þess. Það eru hjólastólastæði í Stóra salnum. Á Litla sviðinu eru margar tröppur en engin handrið. Á Nýja sviðinu er sviðsmyndin og sætaskipan. Það þarf að láta vita þegar miðinn er pantaður ef leikhúsgestur notar hjólastól. Salerni er fyrir hjólastólanotendur. Tvenn P-bílastæði eru fyrir utan (upplýsingar frá fötluðum leikhúsgest).

Menningarfélag Akureyrar (áður Leikfélag Akureyrar)

Menningarfélag Akureyrar | Hafnarstræti 57 |600 Akureyri | Sími: 4 600 200 | Vefsíða Menningarfélags Akureyrar

Menningarfélag Akureyrar er með sýningar á tveimur stöðum: Samkomuhúsinu og Hofi

Hof - Menningarhús

Mjög gott aðgengi er í Hofi og eru allar helstu upplýsingar um það á heimasíðu Menningarfélagsins hér.

Samkonuhúsið Akureyri

Samkomuhúsið á Akureyri er friðað, en þó er hægt að hringja á undan sér á viðburði til að óska eftir aðgengi. Hægt er að láta taka sæti frá fyrir hjólastól og setja ramp út svo að fólk í hjólastól komist inn.

Tjarnarbíó

Tjarnarbíó | Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | Sími: 527 2100 |Vefsíða Tjarnarbíós

Tjarnarbíó er aðgengilegt fyrir hjólastólanotendur. Rampur er frá götu upp á gangstétt og gengið er beint inn frá gangstéttinni. Hurðir eru breiðar, einnig hurð inn í salinn og í salnum er svæði þar sem gert er ráð fyrir einstaklingum í hjólastólum. Aðgengileg salernisaðstaða er einnig til staðar.
Þegar miðar eru pantaðir þarf að taka fram í tölvupósti á ef sýningargestur notar hjólastól. Miðaverð er misjafnt eftir því hverjir halda hvern viðburð og því fer eftir hverjum og einum viðburði hvort öryrkjar fái afslátt á sýningar í Tjarnarbíói eða ekki.

Þjóðleikhúsið

Þjóðleikhúsið |Hverfisgata 19 |101 Reykjavík | Sími: 551 1200|Vefsíða Þjóðleikhússins

Aðgengi hefur verið bætt í Þjóðleikhúsinu og má finna allar nýjustu upplýsingar um það hér. Þar má meðal annars finna upplýsingar um:

  • Aðgengi hreyfihamlaðra
  • Tónmöska og túlkun
  • Upplýsingar um miðasölu og afsláttarkjör fyrir hjólastólanotendur og öryrkja.

Kvikmyndahús

Eftirfarandi upplýsingar um aðgengi í kvikmyndahúsum eru fengnar frá hreyfihömluðum einstaklingum og fyrirtækjunum sjálfum.

Smárabíó

Smárabíó | Smáralind | 200 Kópavogur | Sími: 564 0000 | Vefsíða Smárabíós

Fyrir utan Smáralind eru mörg sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Aðgengi í miðasölu og upp í Smárabíó er gott, lyfta og rúllustigi. Fjögur stór salerni eru fyrir fatlaða, en þungar pumpuhurðar. Í öllum sölum eru hjólastólastæði, þó mismörg.

Kringlubíó

Kringlubíó | Kringlunni  4 - 6 | 105 Reykjavík | Sími: 575 8900 | Vefsíða Sambíóa
Mörg sérmerkt stæði fyrir utan húsið, gott aðgengi inni í húsinu. Eitt salerni sérmerkt fyrir fatlaða og á kvennasalerninu er eitt salerni sem er rýmra en hin (myndi henta hreyfihömluðum sem geta gengið eða nota hækjur eða göngugrindur, ekki þó nægt pláss fyrir hjólastóla). Hjólastólastæði eru í tveimur sölum, sal 1 og 2, en í sal 3 getur hjólastóll verið við hliðina á sætaröðinni þar sem gengið er inn í salinn.

Háskólabíó

Háskólabíó | Við Hagatorg | 107 Reykjavík | Sími: 591 5145 | Vefsíða Háskólabíós
Tvö sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk eru fyrir utan húsið, rétt við innganginn. Miðasala er á fyrstu hæð. Hjólastólastæði er öllum sölum uppi en ekki í salnum á neðri hæð. Fyrir þá sem ekki geta gengið stiga þarf að hafa þó nokkuð fyrir því að komast í lyftu niður á neðri hæð þar sem hún er stýrð með lykli sem starfsfólk geymir. Aðeins eitt salerni er fyrir fatlað fólk, staðsett hinu megin í húsinu. Fyrir þá sem eru lítið hreyfihamlaðir, geta gengið niður tröppur og þurfa ekki á rúmgóðu salerni að halda er það minni fyrirhöfn.

Sambíóin Egilshöll

Sambíóin Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Sími: 575 8900 | Vefsíða Sambíóa
Gott aðgengi og aðstaða utandyra sem innan. Fyrir utan eru sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Miðasala er á fyrstu hæð og bíósalirnir á annarri hæð, lyfta og rúllustigi milli hæða. Salerni fyrir fatlaða og hjólastólastæði í sölunum.

Bíó Paradís

Bíó Paradís | Hverfisgötu 54 | 101 Reykjavík | Sími: 412 7711 | Vefsíða Bíó Paradísar
Fyrir utan Bíó Paradís  er stæði, en ekki sérmerkt P- stæði.  Það er rampur/skábraut  fyrir utan til að komast inn í kvikmyndahúsið. Aðgengi fyrir fólk í hjólastól er orðið mjög gott. Aðgengileg salerni eru til staðar og stæði fyrir hjólastóla í öllum sölum.

Tónlistarsalir

Harpa

Austurbakka 2 | 101 Reykjavík | 528 5000 |midasala(hjá)harpa.is  | Vefsíða Hörpu

Gott aðgengi, nokkur salerni eru í húsinu fyrir fatlaða og lyftur á milli hæða. Sérmerkt bílastæði eru í bílakjallara.
Aðgengi í sölum er misjafnt, í nokkrum eru lausir stólar og þar er auðvelt að sitja í hjólastól við enda raðar eða einfaldlega taka einn stól í burtu og leggja hjólastólnum þar. Í Eldborgarsal, aðalsal Hörpu, eru 4 gjaldfrjáls stæði fyrir hjólastóla, við enda B og D stúku.  Einnig er hægt að taka út sæti fyrir hjólastóla víða um salinn fyrir gesti sem kaupa miða.  Athugið að hafa samband tímanlega við miðasölu, þ.e. áður en mætt er á staðinn, ef þörf er á stæðum fyrir hjólastóla.

Fólk sem notar heyrnartæki hefur verulegt gagn af tónmöskvakerfi eða sambærilegu kerfi sem er notað til að draga úr aukahljóðum og bæta hlustun.  Í Hörpu er hægt að fá afnot af slíkum búnaði, athugið að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir ef óskað er eftir afnotum af búnaðinum.

  1. Ef þörf er á aðstoð við blinda og sjónskerta eru gestir vinsamlegast beðnir um að láta vita af því tímanlega í miðasölu.

    Hreyfihamlaðir hafa einnig aðgang að fríum stæðum í bílakjallara og þá þarf að fylgja eftirfarandi ferli:
  2. Þar sem myndavél, sem greinir alla bíla sem fara um bílahúsið, getur ekki aðgreint P-miða merkta bíla frá öðrum þarf handhafi P-merkis þarf að senda tölvupóst á bilahus@115.is eigi síðar en 3 klukkustundum fyrir viðburð/fyrirhugaða heimsókn.
  3. Eftirfarandi skal koma fram í tölvupóstinum:
  • Nafn og kt. handahafa P-merkis
  • Bílnúmer
  • Tímasetningar
  • Mynd af P-merki

Séu bílar ekki sannanlega tilkynntir með tölvupósti fyrir fram í samræmi við þetta fyrirkomulag gildir gjaldskrá bílakjallara Hörpu.

P-merktir bílar skulu leitast við að leggja í P-stæði sem eru alls 19 talsins. Vangreiðslugjald verður sent vegna ómerktra bíla samkvæmt gjaldskrá.

Óheimilt er að skilja P-merktan bíl eftir í stæði lengur en 10 klukkutíma. Gjaldskrá bílahúss tekur við að þeim tíma liðnum.

Starfsmenn 115 munu fylgjast með því að P-merktir bílar hafi verið skráðir fyrirfram í kerfið.

Háskólabíó

Háskólabíó | Við Hagatorg | 107 Reykjavík | Sími: 591 5145 | Vefsíða Háskólabíós

Stóri salurinn í Háskólabíói er oft notaður fyrir tónlistarviðburði og hefur stæðum fyrir hjólastóla verið komið fyrir í miðjum salnum. Tröppur eru upp í salinn úr anddyrinu, en þar er stólalyfta og starfsmaður á svæðinu til þess að aðstoða fólk (betra að tryggja fyrirfram). Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni getur verið strembið að fara á rafknúnum stól í lyftuna og getur starfsmaður þá fylgt viðkomandi inn um annan hliðarinngang í salinn.
Gott er að hafa samband fyrirfram og láta vita af komu hjólastólanotanda og eru starfsmenn þá viðbúnir að aðstoða ef þörf er á.

Salurinn

Hamraborg 6 | 200 Kópavogi | 570 0400 | salurinn(hjá)salurinn.is| Vefsíða Salarins (Opnast í nýjum vafraglugga)

Í  Salnum eru nokkur sérmerkt stæði fyrir utan húsið. Gott aðgengi er inni í húsinu, lyfta á milli hæða og salerni sérstaklega ætlað fötluðu fólki. Í salnum sjálfum er hins vegar ekki mikið rými fyrir hjólastóla, þeir þurfa að vera meðfram röðum og í smá halla. Það eru fjögur hjólastólastæði og þá eru endasætin tekin úr bekknum (betra að láta vita fyrirfram).

Söfn

Borgarsögusafn Reykjavíkur

Aðalstræti 10 | 101 Reykjavík | 411 6300 | borgarsogusafn@reykjavik.is | Facebooksíða Borgarsögusafns | Vefsíða Borgarsögusafns

Borgarsögusafn Reykjavíkur tók til starfa þann 1. júní 2014 en undir það heyra: Árbæjarsafn, Aðalstræti, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Viðey. Á heimasíðu safnsins er sérstök síða um aðgengi þar sem nálgast má allar upplýsingar um aðgengi á hverjum stað fyrir sig. Þá er einnig ókeypis aðgangur fyrir öryrkja gegn framvísun örorokuskírteinis.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér