Almennt um aðgengi

Gott aðgengi er lykillinn að því að hreyfihamlað fólk geti verið fullgildir þátttakendur í samfélaginu. Fötlun fólks getur verið margvísleg, svo sem skert hreyfigeta handa eða fótleggja eða sjónskerðing.  Ennfremur þurfa flestir á sérstöku aðgengi að halda einhvern tímann á ævinni vegna tímabundinna aðstæðna eins og handleggsbrots, þungunar og þegar fólk er með börn í kerru.  Margir eldri borgarar þurfa líka á sérstöku aðgengi að halda vegna skertrar hreyfigetu fyrir aldurs sakir. 

Í byggingarreglugerð nr.112/2012  er m.a. áhersla á algilda hönnun sem gerir ráð fyrir að mannvirki séu þannig úr garði gerð að þau henti öllum.  Sérstök áhersla er á að tekið sé tillit til þeirra sem eru hreyfihamlaðir eða búa við annars konar fötlun.

Hér erum við fyrst og fremst að fjalla um aðgengi hreyfihamlaðs fólks þó eðlilega megi yfirfæra það á margvíslega fötlun.

Betra aðgengi öllum í hag!

Aðgengi og mannvirki

Hér getur þú meðal annars fengið upplýsingar um byggingarreglugerð . HMS, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, hefur gefið út leiðbeiningar við byggingarreglugerð sem var fyrst samþykkt árið 2012 og leiðbeiningar um hvernig hægt er að haga aðgengi með tilliti til algildrar hönnunar. Í leiðbeiningunum má t.d. finna hagnýtar upplýsingar um bílastæði hreyfihamlaðra s.s. stærð og fjölda sem hlutfall af almennum bílastæðum.  Annað dæmi eru upplýsingar um snyrtingu sem hönnuð er á grundvelli algildrar hönnunar, þar má sjá í hvaða hæð tæki og fylgihlutir á snyrtingum eiga að vera.

Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér