Aðrir skólar

Aðrir skólar

Hér má finna skóla sem flokkast hvorki sem framhaldsskólar né háskólar.

Bataskólinn

Við erum alltaf með opið fyrir umsóknir í skólann.
Sækið um með tölvupósti; bataskoli@bataskoli.is.

Bataskóli Íslands býður upp á nám fyrir fólk, 18 ára og eldra, með geðrænar áskoranir, aðstandendur þeirra og starfsfólk á heilbrigðis- og velferðarsviði. Hægt er að velja úr fjölbreyttu úrvali námskeiða sem samin eru í samvinnu sérfræðinga og fólks með reynslu af geðrænum áskorunum. Námið er nemendum að kostnaðarlausu. Námið er tvær annir og úr alls 20 námskeiðum að velja í allt.

Á þessari vefsíðu er hægt að nálgast upplýsingar um námið, skólann sjálfan og starfsmenn hans. Hægt að nálgast upplýsingar með því að senda verkefnisstjórum Bataskólans tölvupóst, á bataskoli@bataskoli.is. Svo er hægt að hringja í okkur í síma 411-6555 virka daga á milli kl. 13 og 16.

Hringsjá Náms- og starfsendurhæfing

Hátúni 10d|105 Reykjavík|510 9380|hringsja@hringsja.is| Vefsíða Hringsjár

Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Sérstaða Hringsjár felst m.a. í því að um er að ræða einstaklingsmiðað nám. Samhliða kennslu býðst notanda þjónustunnar að nýta sér sérfræðilega ráðgjöf og í ákveðnum tilvikum er um að ræða einstaklingsmiðaða einkakennslu. Markmið Hringsjár er að veita náms- og starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Endurhæfingin felst í einstaklingsmiðuðu námi í formi styttri námskeiða eða fullu einingarbæru námi með sérhæfðri ráðgjöf og stuðningi.
Námið er niðurgreitt fyrir öryrkja en þeir borga námskeiðsbækur og efnisgjöld. 

Hringsjá býður einnig upp á stök námskeið sem öllum er frjálst að skrá sig á.

Myndlistaskólinn í Reykjavík

Hringbraut 121 | 107 Reykjavík |551 1990| mynd@myndlistaskolinn.is | Vefsíða Myndlistaskólans í Reykjavík

Myndlistaskólinn í Reykjavík býður upp á margvísleg námskeið sem efla grunnmenntun á sviði sjónlista og miðlar þekkingu í verklegum og fræðilegum þáttum til nemenda. Nám og námskeið eru í boði fyrir allan aldur, allt frá 4 ára börnum og upp úr. Bókasafn skólans er fagbókasafn vel búið gögnum þar sem nemendur geta unnið og aflað sér frekari þekkingar og heimilda.

Ljósmyndaskólinn

Hólmaslóð 6, | 101 Reykjavík | 562 0623| info@ljosmyndaskolinn.is | Vefsíða Ljósmyndaskólans

Markmið skólans er að kenna ljósmyndun með sköpun að leiðarljósi.
Skólinn býður nemendum sínum upp á þann besta tækjakost sem mögulegt er að fá og góða vinnuaðstöðu. Bókasafn skólans hefur safn bóka um ljósmyndara og ljósmyndun.

Kvikmyndaskóli Íslands

Suðurlandsbraut 18 ( 108 Reykjavík) (444 3300 )( kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is)

Vefsíða Kvikmyndaskóla Íslands

Nám við Kvikmyndaskóla Íslands er alþjóðlega vottað nám sem opnar dyr inn í hinn ört stækkandi heim kvikmyndaiðnaðarins eða til framhaldsnáms í kvikmyndagerð.

Námið er að stærstum hluta verklegt og nemendur vinna að fjölmörgum verkefnum meðan á náminu stendur, bæði við eigin myndir og annarra.

Fjölmennt - símenntunar- og þekkingarmiðstöð

Vínlandsleið 14 |113 Reykjavík| 530 1300 |fjolmennt@fjolmennt.is| Vefsíða Fjölmenntar

Starfsemi Fjölmenntar skiptist í tvær deildir, símenntunardeild og ráðgjafardeild. Símenntunardeild sér um námskeiðshald og ráðgjafadeild Fjölmenntar býður uppá ráðgjöf til einstaklinga, umboðsmanna þeirra og fræðslustofnana vegna náms fyrir fatlað fólk.


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja

Til baka

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér